
09/10/2011
Aðilar
Í dómnefnd á dragkeppni Hinsegin daga sátu fimm faggaðilar.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

25/06/2011
Merkilegt
Merkilegt að ekki verði fleiri umferðaróhöpp þegar allir þessir alkóhólistar mæta akandi á AA fundi.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

03/05/2011
Ekki lána
Mikilvægt er að hugsa vel um gervipíkuna sína og ekki lána hana öðrum en nánum vinum (Albert Einstein).
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

30/03/2011
Pítan
Sólbaðsstofan Pítan, fyrir alla stærðfræðinga sem vilja líta vel út.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

28/03/2011
Útrýming
Gjaldkerar í banka eru í mikilli útrýmingarhættu, þeir eru alveg hættir að nenna að fjölga sér.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

17/03/2011
Salt
Til að nætursalta ýsu er ekki nóg að slökkva bara ljósin.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

10/03/2011
Nýtt
Nýjar heimildir sýna að Örlygsstaðabardagi var skipulögð útihátíð sem fór úr böndunum.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

24/02/2011
Af gefnu tilefni
Vinsamlegast sýnið stillingu og ekki riðlast á gervipíkusjálfsalanum.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

24/02/2011
Geð
Það verður haldið geðveikt útskriftarpartý þegar ég verð laus af geðdeildinni.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

18/02/2011
3000 síður
Rannsóknarskýrslan er 3000 síður. Ótrúlegt hvernig hægt er að komast hjá því að minnast ekki einu sinni á gervipíku.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

07/02/2011
Gimp
Ég var að taka til í geymslunni þegar ég fann gimp sem ég var fyrir löngu búinn að gleyma. Þetta gimp keypti ég á einhverju uppboði í góðærinu. Gimpið er bæði þrifalegt og stundvíst. Auk þess kann gimpið sögur sem tekur öllu öðru fram sem ég hef áður heyrt eða lesið. Vegna plássleysis fæst gimpið gefins ef það er sótt. Endilega hafið samband.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

31/01/2011
Special
Fór á Stælinn um daginn og pantaði mér Heavy Special, máltíð. Varð pínu hissa þegar afgreiðslustelpan kom með franskar, kokteilsósu og feitan mongólíta.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

15/01/2011
Húsráð
Til að ná blettum úr fötum er gott að nota vatn og salt, athugið ekki Season all.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

05/12/2010
Stórar hurðir
Hurðir á matvöruverslunum eru hafðar stórar svo að feita fólkið komist inn.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

20/11/2010
Lost
Eydís fann sig aldrei á níunda áratugnum.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

14/09/2010
Kvið
Margir nýir kviðdómarar mynduðust í síðasta orgíupartý Hæstaréttar.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

11/08/2010
Blíða
Kom við á Sólheimum um helgina, lenti í mongóblíðu.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

05/08/2010
Óvæntar línur
Ég prófaði að teikna línu með grænum tússpenna á milli allra fæðingarbletta á líkamanum mínum. Auk þess gerði ég línu úr naflanum í báðar geirvörturnar. Mér var nokkuð brugðið þegar ég sá að línurnar mynduðu andlitið á Bryndísi Schram. Nú bíð ég eftir að þeir opni fyrir símann hjá Bylgjunni til að fara yfir þetta mál.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

16/06/2010
Greining
Fimm ára gamall var ég ekki farinn að tala og hvað þá skrifa. Læknirinn benti mömmu á að fara með mig í greiningu hjá sérfræðingi. Vegna misskilnings var ég sendur í litgreiningu og í ljós kom að ég var vor.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

13/06/2010
Próf
Ég hitti trukkalessu í partý. Hún var ekki með meirapróf.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

02/06/2010
Byggðarþróun
Byggð myndaðist snemma á Akureyri því þar var bæði að finna gjöful fiskimið og frábærar skíðalyftur.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

11/05/2010
Megrun
Ég er hættur í megrun og farinn í átak.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

27/04/2010
Bomba
Varasamt er að meðhöndla kynbombur eins og innibombur.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

16/04/2010
Kvarði
Ég hringdi í Vegagerðina í dag, þeir nota ekki heimsmælikvarða.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

16/03/2010
Vonbrigði
Ég fór fyrr úr vinnunni í dag til að heimsækja afa. Það voru ákveðin vonbrigði þegar hann leiðrétti misskilninginn að hann væri kominn með gervimjöðm en ekki gervihnött.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

14/03/2010
Engir stælar
Ég hitti staðgöngumóður um daginn, kom á óvart hvað hún var alþýðleg. Alveg laus við alla stæla.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

03/03/2010
Vertu úti
Ég benti verslunarstjóranum í IKEA á að ekki væru ein blöndunartæki í allri búðinni sem virkuðu. Hann bað mig um að vera úti.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

21/02/2010
Nauðsynlegar handbremsur
Það var eftir harðan árekstur á Hrafnistu sem það þótti nauðsynlegt að setja handbremsur á allar göngugrindur.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

31/01/2010
Stress
Það hlýtur að vera stressandi að vinna í hraðfrystihúsi.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

30/01/2010
Rætt
Þegar rætt er við homma er mikilvægt að tala bæði hátt og skýrt.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

27/01/2010
Saksóknari
Hitti saksóknara í dag, hann var ekkert sérstakur.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

21/01/2010
Til sölu
Bíll með hanskahólfi til sölu.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

10/01/2010
Blind
Rannsóknir á siðblindu sýna að hún er ekkert tengd litblindu.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

08/01/2010
Rannsókn
Rannsókn á dauða Michael Jackson er loksins lokið. Niðurstaðan er að maðurinn er látinn.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

31/12/2009
Sá
Ég sá tvo menn hnakkrífast í mjólkurkæli. Þeir voru báðir frá Selfossi.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

29/12/2009
Fíla
Ég fílaði alltaf Dagbjörtu betur en Rúnu.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

14/12/2009
Engin föt
Konur eiga oft engin föt til að fara í. Þess vegna mæta þær stundum allsberar í stórafmæli.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

13/12/2009
Frétt
Hringdi í Fréttablaðið og spurði hvort hægt væri að senda mér bara íþróttasíðurnar. Það er ekki hægt.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

12/12/2009
Ekki smakka
Það má ekki smakka piparkökuhúsin sem eru til sýnis í Smáralind. Ég hafði ekki hugmynd um það. Öryggisvörðurinn bað mig um að koma ekki aftur fyrr en eftir jól.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

07/12/2009
Heims
Í hvert skipti sem ég heyri orðið heimsforeldri fer ég að hugsa um heimsborgara. Það er ekki það sama.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

06/12/2009
Húsfundur
Þó svo ég hafi mætt með heimabakað fléttubrauð á húsfundinn þá var hugmyndin mín um að mála ruslarennuna að innan ekki samþykkt.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

04/12/2009
Léttar veitingar
Það er ekki verið að tala um candyfloss.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

01/12/2009
Heimsókn
Það var ekki fyrr en fyrsti þröskuldurinn var fundinn upp að fólk fór að detta í heimsókn.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

30/11/2009
Ekki spyrja
Mikilvægt er að spyrja ekki gamalt fólk hvernig því líður ef maður er að verða of seinn í bíó.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

29/11/2009
Hitafundur
Mikill hitafundur var haldinn í Bakkahverfinu í Breiðholti þegar sú hugmynd kviknaði að sökkva ætti Eyjabökkum.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

24/11/2009
IKEA
Ég fer ekki aftur í IKEA. Þeir ráku mig úr boltalandi fyrir óspektir.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

23/11/2009
Derrick
Derrick leysti öll sín mál með síma, ritvél og borðlampa.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off

12/11/2009
Slys
Fór á skyndihjálparnámskeið í dag. Fékk engin svör hvernig bregðast á við tískuslysum.
Skrifað í Uncategorized | Comments Off